Göngugreining
Reynslumikið fagfólk Fætur toga tekur vel á móti þér í göngugreiningu. Erum staðsett á 3 hæð Kringlunar (Ofan HM) og á Höfðabakka 3.
Um tilboðið:
-
Gildir fyrir göngugreiningu.
-
Fullorðnir 16 ára og eldri
-
Börn yngri en 16 ára.
-
-
Gildir alla virka daga.
-
Göngugreiningin tekur 20-30 mínútur.
-
Bóka þarf tíma fyrirfram í síma 55 77 100 eða í gegnum vefsíðu hér.
-
Gildir á öllum stöðum.
-
Höfðabakki 3, 110 Reykjavík.
-
Heilsuhæð Kringlunar, fyrir ofan H&M.
-
Þeir sem koma í göngugreiningu fá 15% afslátt af skóm næstu 2 árin.
Hvað er skoðað í göngugreiningu
Í göngugreiningu er skoðað hvernig álag dreyfist á fótinn í skrefinu. Hvort skekkja sé í hælum, ökklum eða hnjám. Mælt er hvort mislengd sé á ganglimum bæði frá mjöðmum og hnjám. Einnig er athugað hvernig viðkomandi beitir sér við göngu ef það á við.
Á eftirfarandi við þig? Þá ættir þú að koma í göngugreiningu
-
Verkir í baki, mjöðmum, hnjám, ökklum, hælum, tábergi eða leggjum. Sérstaklega ef verkirnir eru einungis öðru megin.
-
Mislengd ganglima (annar fóturinn lengri en hinn).
-
Sýnilegar skekkjur í hælum, ökklum og/eða hnjám.
-
Flatur fótur (plattfótur, fallinn iljarbogi) eða hár iljarbogi þar sem stigið er einungis í hæl og táberg.
-
Tábergssig og/eða þreyta, doði, hiti, kuldi, stingandi tilfinning í tábergi og/eða tám.
-
Bólgur og eymsli undir iljum og/eða hælum (plantar fasciitis, hælspori) og beinhimnubólga eða hásinabólga.
-
Fá bestu ráðleggingu sem völ er á við val á
.
-
Mikið álag í íþróttum. Sérstaklega ef um endurtekin meiðsli er að ræða.
-
Mikil staða og ganga á hörðu undirlagi í vinnu.
-
Aflaganir á fæti eða óeðlilegur vöxtur beina.
Innlegg
Í kjölfar göngugreiningar getum við útbúið sérgerð innlegg. Við notumst bæði við sérgerð innlegg og mótuð innlegg sem eru nettari, þau eru hituð og mótuð undir fótinn. Við ráðleggjum hvað hentar viðkomandi í daglega notkun, vinnu og íþróttir. Ef mæld er mislengd á ganglimum og ákveðið er að hækka er hækkunin innbyggð í innleggin og notast er við hækkunarpúða í þá skó sem innleggin eru ekki notuð. Almennur afgreiðslutími sérgerðra innleggja eru 7-10 virkir dagar, getur verið lengur á háannatímum. Innlegg sem eru hituð og mótuð eru afgreidd samstundis.
Skóbúnaður og ráðleggingar
Ráðleggjum hvað skal hafa í huga við val á skóm. Mælum með stuðningsvörum (stuðnings- og/eða hitahlífum eða spelkum) ef þarf. Mælum með æfingum eða teygjum ef það á við og getum bent á hvort aðrir meðferðaraðilar gætu hjálpað svo sem sjúkraþjálfari, nuddari, kírópraktor eða læknir.
Búnaður í göngugreiningar
Við notum framúrskarandi búnað frá RSscan. Nýja V9 3D hátæknilega þrýstiplötu, hlaupabretti, upptökubúnað og sérhannaðan tölvuhugbúnað. Einnig notum við sérgerð hallamál til mælingar á mislengd ganglima frá mjöðmum og hnjám.
Endurkoma
Allir sem koma í göngugreiningu eiga kost á að koma í endurkomu innan 6 mánaða og kostar endurkoman 2.490 kr. Í endurkomu er skoðað hvort breytingar hafi átt sér stað. Ef notast var við innlegg eru þau skoðuð og þeim breytt sé þess þörf. Þeir sem mælast með mislengd ganglima ættu að koma eftir u.þ.b. 3 mánuði og önnur mæling er tekin til að staðfesta fyrri mælingu eða hvort breytinga sé þörf.
Tími í endurkomu
10-30 mínútur.
Um Eins og Fætur Toga
Hjá Fætur Toga starfar reynslumikið fagfólk sem hefur síðastliðin 10 ár tekið yfir 60.000 íslendinga í göngugreiningu um allt land. Við vinnum náið með íþróttahreyfingunni og fagaðilum í heilbrigðisstétt. Einnig ferðumst við um landið með göngugreiningar, kynningar og sölu á tengdum vörum.
Í verslunum okkar, sem eru staðsettar að Höfðabakka 3, 110 Reykjavík og á Heilsuhæð Kringlunnar (3. hæð) sér fagfólk um göngugreiningar, fótskoðun, skóráðgjöf, skósölu og sölu fylgihluta. Einnig ráðleggur starfsfólk um hlaupafatnað, íþróttatoppa/brjóstahaldara og mælir með vörum fyrir fætur s.s. tábergspúða, upphækkanir, sérsmíðuð og stöðluð innlegg auk skóbreytinga. Við sérhæfum okkur í sölu á gæðavörum og leggjum metnað í góða þjónustu og sanngjörn verð.
