BAKAÐ MEIRA með Elenoru Rós
Í bókinni má finna földan allan af auðveldum, bragðgóðum og fallegum uppskriftum – bæði klassískum og nútímalegum sem allir geta gert.
BAKAÐ meira er sjálfstætt framhald bókarinnnar BAKAÐ með Elenoru Rós. Eldmóður Elenoru og ást hennar á bakstri skín áfram í gegn í þessari fallegu bók sem er bjartari, öflugri og persónulegri en sú fyrri.
Hér deilir Elenora sínum dýrmætustu uppskriftum úr æsku sem hingað til hafa aðeins leynst í uppskriftabókum fjölskyldu hennar – útataðar í slettum!
Innbundin - 185 bls.
FROZEN matreiðslubókin
Hoppaðu á sleðann og eldaðu ljúffengan og hollan mat með vinum þínum úr FROZEN.
Þessi bók hefur að geyma 63 girnilegar og einstaklega hollar uppskriftir fyrir alla fjölskylduna. Bókinni er skipt upp í sjö kafla, einn fyrir hvern dag vikunnar og því er auðvelt að setja saman matseðil fyrir vikuna - nú eða mánuðinn - með þínum uppáhaldsréttum.
Lærðu að elda pastarétt Önnu og Kristjáns, jarðaberja rísottó drottningarinnar, ofurmorgunverð Önnu, lambalæri Elsu, heimalöguðu kjötbollurnar hans Ólafs og margt fleira.
Í FROZEN matreiðslubókinni geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi!
Allir réttir í bókinni eru með upplýsingum um næringargildi. Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur hjá Matís, skrifar formála.
Innbundin - 152 bls.